Icelandair bætir við áfangastöðum í Bandaríkjunum

Icelandair bætir við sig áfangastöðum næsta sumar.
Icelandair bætir við sig áfangastöðum næsta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Icelandair hefur kynnt til leiks nýjan áfangastað í Bandaríkjunum, Raleigh-Durham í Norður-Karólínu. Flug til borgarinnar munu hefjast á næsta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair.

Í Raleigh, sem er höfuðborg Norður-Karólínu, búa rúmlega 10 milljónir manna. Þangað mun Icelandair bjóða upp á flugferðir fjórum sinnum í viku á næsta ári á tímabilinu 12. maí til 30. október.

„Icelandair mun bjóða tíðar ferðir til og frá Íslandi og öflugar tengingar áfram til áfangastaða félagsins í Evrópu, en frá Raleigh flugvelli eru ekki margar beinar tengingar við Evrópu í dag. Góðar tengingar eru frá Raleigh áfram til fjölda áfangastaða í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningunni.

Áhersla á áfangastaði sem hafa litlar tengingar við Evrópu

Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir Raleigh spennandi viðbót við leiðakerfi flugfélagsins. Telur hann Norður-Karólínu hafa margt upp á að bjóða og að háskólasamfélagið og viðskiptalífið muni njóta góðs af tengingu við borgina.

„Undanfarin ár höfum við lagt áherslu á að bæta við nýjum áfangastöðum vestanhafs sem hafa litlar tengingar við Evrópu fyrir. Þannig getur félagið bætt mjög þjónustu frá þessum svæðum til Evrópu og nýtt þau tækifæri sem liggja í öflugu leiðakerfi okkar og stuttum tengitíma á Keflavíkurflugvelli,“ er haft eftir Boga í tilkynningunni.

Fyrr í dag var greint frá því að Play myndi hefja Ameríkuflug næsta sumar. Greindi félagið frá því að fyrstu tveir áfangastaðirnir yrðu Boston og Washington D.C.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK