Nýliðinn febrúarmánuður var einkar snjóþungur um land allt og merki um það mátti greinilega sjá í verslunum Húsasmiðjunnar. Snjóskóflur og snjósköfur seldust upp á höfuðborgarsvæðinu og var aukning í sölu um 140% milli ára, að því er fram kemur í tilkynningu frá Húsasmiðjunni.
„Við höfum ekki séð svona mikla sölu á snjóskóflum í mörg ár, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu þar sem salan margfaldaðist milli ára,“ er haft eftir Magnúsi Magnússyni, markaðsstjóra Húsasmiðjunnar.
Í tilkynningunni kemur fram að Húsasmiðjan geri ráð fyrir því að salan „detti niður“ þegar tíðin batni.