Borgin vill selja Perluna: 4 milljarða fasteignamat

Perlan í Öskjuhlíð.
Perlan í Öskjuhlíð. mbl.is/Golli

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að heimila eignaskrifstofu borgarinnar að hefja söluferli á eign Reykjavíkurborgar í Perlunni auk tveggja vatnstanka í Öskjuhlíð við Varmahlíð 1.

Í tilkynningu frá borginni er rifjað upp að Hitaveita Reykjavíkur byggði Perluna og var hún opnuð árið 1991. Reykjavíkurborg keypti Perluna árið 2013 og síðar tvo vatnstanka af Orkuveitu Reykjavíkur.

„Á þeim tíma sem kaupin fóru fram stóð rekstur hússins ekki undir sér og tekjur rétt nægjanlegar fyrir fasteignagjöldum og lóðarleigu,“ segir í tilkynningunni.

Tekið er fram að á þessum tíu árum sem liðin eru hafi algjör viðsnúningur orðið á rekstrinum og að tekjur standi vel undir kostnaði.

Metin á næstum fjóra milljarða

„Húsnæðið var auglýst til leigu og er núverandi leigutaki Perla norðursins ehf. sem hefur þróað hana sem áhugaverðan áfangastað í Reykjavík. Perlan hefur síðustu ár tekið miklum breytingum og hýsir núna sýningar auk veitingastaða. Perlan er einn af aðaláfangastöðum ferðamanna í borginni, og frá útsýnispallinum er magnað útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og fjallahringinn,“ segir í tilkynningu.

„Í Perlunni er fjöldi sýninga þar á meðal íshellir, stjörnuver og gagnvirkar sýningar um íslenska náttúru og menningu. Þessar eignir bjóða upp á aukin tækifæri og möguleika til áframhaldandi þróunar og ekki sjálfgefið að Reykjavíkurborg sé besti aðilinn til að þróa þessar eignir áfram. Stærð hússins og tanka er um 5800 fermetrar og er fasteignamat 3.942.440.000 krónur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK