[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]

Fréttir af Chelsea

Íþróttir | mbl | 17.4 | 13:36

Níu mörk í þremur heimaleikjum (myndskeið)

Cole Palmer hefur farið algjörlega á kostum með Chelsea undanfarið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Meira

Íþróttir | mbl | 16.4 | 11:30

Sættir sig ekki við framkomu leikmannanna

Cole Palmer býr sig undir að taka vítaspyrnuna á meðan...

Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóri Chelsea, er afar óhress með framkomu leikmanna sinna sem rifust um hver ætti að taka vítaspyrnu í leik liðsins við Everton í gærkvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 15.4 | 23:20

Ferna Palmers í risasigri (myndskeið)

Cole Palmer skoraði fernu í 6:0-stórsigri Chelsea á Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 15.4 | 21:00

Palmer með fernu og jafnaði við Haaland

Cole Palmer fagnar einu af fjórum mörkum sínum í kvöld.

Cole Palmer skoraði fernu fyrir Chelsea þegar liðið vann geysilega öruggan sigur á Everton, 6:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 15.4 | 20:35

Rifust um að taka vítaspyrnu (myndskeið)

Þrír leikmenn Chelsea rifust um hver þeirra fengi að taka vítaspyrnu í leik gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 15.4 | 20:05

Skoraði fullkomna þrennu í fyrri hálfleik (myndskeið)

Cole Palmer fór á kostum í fyrri hálfleik í leik Chelsea og Everton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 15.4 | 8:40

Selur Chelsea sinn besta mann?

Conor Gallagher er í lykilhlutverki hjá Chelsea.

Conor Gallagher, sem hefur verið fyrirliði enska knattspyrnuliðsins Chelsea, verður líklega seldur í sumar þrátt fyrir að vera í lykilhlutverki hjá liðinu. Meira

Íþróttir | mbl | 7.4 | 23:10

Dramatískt jöfnunarmark botnliðsins (myndskeið)

Oli McBurnie reyndist hetja Sheffield United þegar hann jafnaði metin gegn Chelsea í 2:2 og tryggði liðinu stig með marki í uppbótartíma þegar liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Meira

Íþróttir | mbl | 7.4 | 18:32

Chelsea glutraði niður forskoti gegn botnliðinu

Oli McBurnie jafnaði metin fyrir Sheffield United á ögurstundu.

Chelsea mátti sætta sig við jafntefli gegn botnliði Sheffield United, 2:2, þegar liðin mættust í 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu karla í Sheffield í dag. Meira

Íþróttir | mbl | 7.4 | 11:30

Svakalegir leikir rifjaðir upp (myndskeið)

Eftir sigur Chelsea á Manchester United, 4:3, í síðustu umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu tók deildin saman myndskeið af öllum leikjum tímabilsins sem enduðu 4:3. Meira

Íþróttir | mbl | 5.4 | 8:43

„Þetta var sturlað“

Cole Palmer fagnar sigurmarki sínu í gærkvöldi ásamt Enzo Fernández.

Cole Palmer var að vonum ánægður eftir að hann skoraði þrennu og tryggði Chelsea dramatískan sigur á Manchester United, 4:3, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Meira

Íþróttir | mbl | 4.4 | 22:45

Þrenna í sjö marka veislu (myndskeið)

Cole Palmer skoraði þrennu fyrir Chelsea þegar liðið vann hádramatískan endurkomusigur á Manchester United, 4:3, í mögnuðum leik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 4.4 | 21:21

Lygileg endurkoma Chelsea gegn United

Chelsea-menn fagna sigurmarki Cole Palmer.

Chelsea og Manchester United mætast í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á Stamford Bridge klukkan 19.30 í kvöld. Meira

Íþróttir | mbl | 4.4 | 15:50

Tímabili framherjans væntanlega lokið

Christopher Nkunku hefur lítið spilað á tímabilinu.

Franski knattspyrnumaðurinn Christopher Nkunku leikur líklegast ekkert meira með Chelsea á leiktíðinni vegna meiðsla. Meira

Íþróttir | mbl | 3.4 | 13:47

Fyrirliðinn sakaður um kynþáttaníð – Chelsea svarar fyrir sig

Conor Gallagher.

Forráðamenn enska knattspyrnufélagsins Chelsea sendu frá sér yfirlýsingu í dag eftir að Conor Gallagher, fyrirliði liðsins, var sakaður um kynþáttaníð í garð ungs stuðningsmanns félagsins. Meira

Íþróttir | mbl | 2.4 | 18:32

Ýtti Svíanum og sakaði um árásargirni

Emma Hayes.

Emma Hayes, knattspyrnustjóri kvennaliðs Chelsea, var ekki á eitt sátt við kollega sinn hjá Arsenal, Jonas Eidevall, á meðan úrslitaleik liðanna í enska deildabikarnum stóð og eftir hann um liðna helgi. Meira

Íþróttir | mbl | 2.4 | 17:22

Skrifaði undir hjá Chelsea

Alfie Gilchrist í leik með Chelsea.

Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur komist að samkomulagi við varnarmanninn unga, Alfie Gilchrist, um að hann leiki áfram með liðinu næstu tvö ár. Meira

Íþróttir | mbl | 2.4 | 11:36

Jákvæðar fréttir af leikmanninum sem hné niður

Leikmenn Arsenal huga að Fridu Maanum.

Norska landsliðskonan Frida Maanum, miðjukona Arsenal, hné niður undir lok venjulegs leiktíma og var borin af velli í óhugnarlegu atviki er Arsenal og Chelsea mættust í úrslitaleik enska deildabikarsins á Molineux-vellinum í Wolverhampton á sunnudaginn var. Meira

Íþróttir | mbl | 1.4 | 11:27

Leikmaður Arsenal hné niður

Frida Maanum borin af velli í gær.

Óhugnanlegt atvik átti sér stað er Arsenal og Chelsea mættust í úrslitaleik deildabikars kvenna í fótbolta á Molineux-vellinum í Wolverhampton í gær. Meira

Íþróttir | mbl | 30.3 | 17:35

Rautt spjald og vippa beint á markið (myndskeið)

Chelsea og Burnley skildu jöfn, 2:2, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, þrátt fyrir að Chelsea hafi í tvígang komist yfir og verið einum fleiri frá 40. mínútu. Meira

Íþróttir | mbl | 30.3 | 14:30

Chelsea – Burnley sýndur beint á mbl.is

Mauricio Pochettino og lærisveinar hans í Chelsea fá...

Leikur Chelsea og Burnley í 30. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Stamford Bridge í Lundúnum verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15. Meira

Íþróttir | mbl | 27.3 | 15:00

Lék aðeins í hálftíma á tímabilinu

Roméo Lavia.

Belgíski knattspyrnumaðurinn Roméo Lavia, miðjumaður Chelsea, leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu eftir að bakslag kom í bata hans. Hefur Lavia glímt við alvarleg meiðsli aftan í læri undanfarna mánuði. Meira