Fangar bíða eftir bótum
Fjöldi húsa rifinn
Af þeim íbúðarhúsum sem urðu fyrir tjóni í Suðurlandsskjálftanum í maí eru 24 svo mikið skemmd að vátryggingafé dugar ekki fyrir viðgerðum. Ekki borgar sig að gera við þau miðað við matsverð þeirra. Verða þau bætt að fullu og að öllum líkindum rifin að sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Viðlagatrygginga Íslands. Meira
Stór klettur hrundi úr Ingólfsfjalli
Svo virðist sem mjög stór klettur hafi fallið úr Ingólfsfjalli fyrir stuttu. Grjóthrunið varð í fjallinu gegnt gatnamótum Suðurlandsvegar og Biskupstungnabrautar. Ekki er ljóst hvenær kletturinn féll, en þó er öruggt að það var nokkru eftir að jarðskjálftinn varð í maí. Meira
Hitavatnsborholur á Reykjum ónýtar
Um 65 mál eru á borði þjónustumiðstöðvar vegna jarðskjálftanna sem urðu á Suðurlandi í lok maí síðastliðins. Ólafur Örn Haraldsson verkefnisstjóri segist búast við því að þeim muni fjölga eitthvað en þó sé farið að fækka málum sem koma inn á hans borð. Meira
Tjónþolum boðin aðstoð
Þeir sem orðið hafa fyrir tjóni vegna Suðurlandsskjálftanna í vor, sem ekki fæst bætt úr tryggingum eða telja sig ekki hafa fengið fullnægjandi úrlausn sinna mála geta nú snúið sér til þjónustumiðstöðvarinnar í Tryggvaskála á Selfossi. Þar verður tekið á móti öllum erindum og þau flokkuð og skráð. Meira
Starfshópur skipaður vegna Suðurlandsskjálfta
Ríkisstjórnin hefur ákveðið, að tillögu forsætisráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, að setja á laggirnar starfshóp ráðuneyta sem ætlað er að vinna náið með fulltrúum sveitarstjórna á jarðskjálftasvæðunum á Suðurlandi við að meta hvernig fara skuli með ótryggð tjón einstaklinga og fyrirtækja svo og hvernig haga skuli fjárhagslegum stuðningi við sveitarfélög, m.a. vegna endurreisnarstarfsins. Meira
Tvö þúsund tilkynningar um tjón
Viðlagatryggingu Íslands hafa á síðustu vikum borist 1.840 tilkynningar um skemmdir á húsum í kjölfar jarðskjálftans á Suðurlandi 29. maí síðastliðinn. Þá hafa nær 2.000 aðilar tilkynnt tjón á innbúi sem varð í hinum miklu náttúruhamförum. Þegar hafa verið greiddar út um 600 milljónir króna í bætur. Meira
Búið að greiða 400 milljónir eftir skjálftann
Búið er að tilkynna um tjón á allt að eitt þúsund byggingum eftir Suðurlandsskjálftann 29. maí síðastliðinn. Að sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, forstjóra Viðlagatryggingar Íslands, er verið að meta tjón á þeim byggingum sem mest eru skemmdar. Ásgeir segir að búið sé að greiða um 400 milljónir króna í bætur vegna tjóns á innbúi eftir skjálftann. Meira
Búið að borga 250 milljónir
Búið er að bæta tjón á innan-stokksmunum fyrir á bilinu 250 til 300 milljónir eftir Suðurlandsskjálftann. Ljóst er að tjón er þó margfalt meira og enn er eftir að meta mikið. Meira
Jarðskjálfti á Suðurlandi
Jarðskjálfti sem mældist 3,2 stig á Richter, með upptök um 7 km norðnorðaustur af Selfossi, varð um klukkan 9:43 í morgun. Jarðskjálftinn fannst í Hveragerði og í Þrastarskógi. Engir eftirskjálftar hafa fylgt þessum jarðskjálfta, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.
Mun meira tjón í jarðskjálftanum en árið 2000
Greiddar tjónabætur Viðlagatryggingar eftir Suðurlandsskjálftana árið 2000 námu 2,5 milljörðum. Á ferð fjárlaganefndar Alþingis um Suðurland í vikunni upplýstu sunnlenskir sveitarstjórnarmenn að tjónið af jarðskjálftanum nú sé mun meira og nemi trúlega 3 til 3,5 milljörðum. Meira
Kippirnir hafa enn áhrif
„Það hefur dregið úr heimsóknum,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, verkefnisstjóri Rauða krossins yfir þjónustumiðstöðvum vegna Suðurlandsskjálftanna. Komufjöldi hafi sveiflast eftir dögum og mismunandi eftir stöðum. Meira
Þingmenn vilja fund vegna jarðskjálfta
Þingmenn Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi hafa óskað formlega eftir því við Árna M. Mathiesen, fyrsta þingmann kjördæmisins, að hann boði alþingismenn Suðurkjördæmis til fundar vegna nýafstaðinna jarðskjálfta. Meira
Skjálftar skekja ekki markaðinn
Ekki virðist hafa hægt um á fasteignamarkaði á Suðurlandi að neinu marki í kjölfar skjálftans 29. maí sl. Þetta er mat þeirra fasteignasala sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Bentu þeir á að tölur um þinglýsta kaupsamninga í Fasteignablaðinu í gær endurspegluðu ekki fasteignaviðskiptin eftir skjálftana, því einhver tími liði frá því kauptilboði væri tekið þar til kaupsamningi væri þinglýst. Meira
Íbúar á Suðurlandi eru enn að vinna úr skjálftanum
Þrátt fyrir að lífið á Suðurlandi sé smám saman að færast í eðlilegt horf eru eftirköst Suðurlandsskjálftans sem reið yfir 29. maí síðastliðinn enn vel greinanleg. Fjöldi fólks treystir sér enn ekki til að dvelja í húsum sínum þrátt fyrir að þau séu vel íbúðarhæf. Um 22 hús eru óíbúðarhæf í sveitarfélögunum Ölfusi, Árborg og Hveragerði. Eignatjón er gríðarlegt og engin leið að meta það að fullu. Meira
Skjálftavirni að aukast á ný
Jarðskjálfti, sem mældist 3,1 stig á Richter, varð um klukkan hálf tvö í nótt og voru upptökin um 9,6 km suður af Hveragerði. Annar jafn stór skjálfti varð í gærkvöldi laust fyrir klukkan 22 og voru upptökin um 5 km austur af Hveragerði samkvæmt sjálfvirkum skjálftalista Veðurstofunnar. Meira
TM leiðréttir eigin áhættu tjónþola
Tryggingamiðstöðin segir í yfirlýsingu, að viðskiptavinir sem félagið hafi þegar gert upp við vegna tjóns í jarðskjálftunum, muni sjálfkrafa fá leiðréttingu í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að lágmark eigin áhættu í tjónum sem Viðlagatrygging Íslands bætir lækki úr 85.000 krónum í 20.000 krónur. Meira
Hætta á grjóthruni
Almannavarnanefndir á jarðskjálftasvæðinu á Suðurlandi hafa látið meta hættu á grjóthruni í kjölfar jarðskjálftanna. Niðurstöður rannsókna eru þær að hætta á grjóthruni er talin hafa aukist á svæðinu kringum Hamarinn við Hveragerði, Reykjafjall og Ingólfsfjall. Meira
Landbúnaðarháskólinn: Skemmdur eftir skjálftana
Eitt af húsum starfsstöðvar Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi er illa sprungið eftir skjálftahrinuna, að sögn Guðríðar Helgadóttur staðarhaldara. Ákveðið hefur verið að leyfa ekki starfsemi í húsinu þar til ástand þess hefur verið metið betur. Meira
Eftirskjálfti suðvestur af Selfossi
Jarðskjálfti, sem mældist rúm 3 stig á Richter, var á áttunda tímanum í kvöld á skjálftasvæðinu á Suðurlandi. Voru upptökin um 8,3 kílómetra vestsuðvestur af Selfossi. Meira
Fundur fyrir íbúa af erlendum uppruna
Boðað hefur verið til íbúafundar síðdegis á morgun fyrir þá íbúa á jarðskjálftasvæðinu, sem eru af erlendum uppruna. Fundurinn verður haldinn í Vallaskóla, Sólvöllum, á Selfossi. Meira
Jarðskjálfti kann að hafa valdið flóðbylgju
Suðurlandsskjálftinn í síðustu viku kann að hafa valdið flóðbylgju sem náði að ströndum Skotlands. Fram kemur í blaðinu The Press and Journal í dag að íbúar á norðausturhluta Skotlands hafi orðið varir við óvenjuleg sjávarföll á svipuðum tíma og jarðskjálftinn reið yfir. Meira
Íbúafundur í Hveragerði
Bæjarstjórn Hveragerðis boðar til íbúafundar vegna jarðskjálftanna í kvöld klukkan 20 á Hótel Örk. Á fundinn munu mæta meðal annars fulltrúar frá sveitarfélaginu, almannavarnardeild, Rauða krossinum, Heilbrigðisstofnun, Viðlagatryggingu og frá Jarðskjálftamiðstöðinni. Meira
120 skjálftar á 12 tímum
Síðasta sólarhringinn hefur dregið talsvert úr eftirskjálftavirkninni eftir Suðurlandsskjálftann þann 29. maí. Enn mælast samt nokkrir skjálftar á klukkustund. Um 120 skjálftar hafa mælst frá því klukkan 21 í gærkvöldi, þeir stærstu á stærðarbilinu 2 - 2,5. Meira
Ekki heima – sem betur fer
„Sem betur fer var ég ekki heima þegar þetta gekk yfir en var í kaffi hjá bróður mínum hér ofar í bænum. Ég hefði ekki viljað vera staddur inni í eldhúsi heima, eins og aðkoman var,“ segir Haukur Michelsen múrarameistari í Heiðarbrún 21 í Hveragerði, en jarðskjálftasprungan frá því fyrir viku liggur undir húsið hans. Meira