Lexus LBX verður kynntur til sögunnar hjá Lexus í Kauptúni í dag.
Í tilkynningu segir að LBX sé minnsti meðlimur Lexus-fjölskyldunnar, en gefur þeim stærri ekkert eftir í lúxus og þægindum.
„Hann hefur þegar sannað ágæti sitt með því að vera valinn bíll ársins 2024 af breska bílatímaritinu What Car?“
LBX kemur í sjö útfærslum og lita- og búnaðarsamsetningum. Verðið á Lexus LBX er frá 6.890.000 kr.
LBX verður sýndur í Kauptúni í dag, laugardag, kl. 12 – 16.