Stjörnuspá mán. 6. maí. 2024

Stjörnuspá
mán. 6. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Þér finnst kannski að einhver í vinnunni sé að segja þér ósatt og líklega er það rétt mat hjá þér. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs.

20. apríl - 20. maí

Láttu ekki fordóma hafa áhrif á hvernig þú metur tilboð sem þér berast. Þú hefur hæfileika, en stundum er erfitt að vita hvernig maður á að nota þá sem best.

21. maí - 20. júní

Það skiptir þig meira málin núna en vanalega hvernig fólk sér þig. Allir munu njóta hóls þíns í dag og heillandi persónuleiki þinn mun sýna hve einlægur þú ert.

21. júní - 22. júlí

Þú gætir fengið gjöf eða aðstoð við eitthvað sem tengist heimili þínu eða fjölskyldu. Njóttu þess og efldu styrk þinn fyrir átakameiri tíma.

23. júlí - 22. ágúst

Treystu á sjálfan þig því þitt er að ráða fram úr hlutunum. Þér líður dásamlega með hvernig hlutirnir ganga fyrir sig.

23. ágúst - 22. september

Einlægar samræður við góðan vin gera þér gott í dag. Líttu svo á að allir séu að reyna að gera sitt besta með þeim verkfærum sem þeir hafa yfir að ráða.

Vog
23. september - 22. október

Þú stendur frammi fyrir svo mörgum möguleikum að það er úr vöndu að ráða. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru.

23. október - 21. nóvember

Það er engu líkara en þér séu allir vegir færir og ekki til það vandamál sem þú getur ekki leyst. Vertu bjartsýnn því takmark þitt er ekki eins fjarlægt og þú heldur.

22. nóvember - 21. desember

Hlauptu ekki á þig í samskiptum við vini þína. Stundum er besta ráðið bara að gera ekki neitt og búa sig undir næsta dag.

22. desember - 19. janúar

Dulin óvild mun hugsanlega koma upp á yfirborðið hjá þér í dag. Veltu þér ekki upp úr því þótt eitthvað fari úr skorðum.

20. janúar - 18. febrúar

Fólk er sífellt að sá fræjum hugsana í kollinum á þér. Skoðaðu vandlega hvað þú hefur sjálfur og lærðu að meta það.

19. febrúar - 20. mars

Reyndu að forðast þá aðstöðu að lenda úti í horni með þín verk. Taktu afleiðingum gjörða þinna og mundu að til þess að ná árangri þarftu að leggja þitt af mörkum.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og