Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson og barnafataverslunareigandinn Alexandra Helga Ívarsdóttir eiga von á öðru barni.
Í færslu á Instagram óskaði Alexandra Melrós Míu, dóttur þeirra Gylfa, til hamingju með þriggja ára afmælið og sagði að hún yrði besta stóra systir í heimi.
Í október festu hjónin kaup á einbýlishúsi við Brúnás í Garðabæ.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!