Ísraelski herinn hefur gefið það út að þrír hermenn hafi látist og tólf særst eftir að eldflaugadrífu var skotið að Kerem Shalom-landamærunum á Suður-Gasa.
Þrír eru sagðir alvarlega særðir.
Landamærin eru hin sömu og notuð hafa verið til þess að flytja hjálpargögn á Gasasvæðið.
Árásin var gerð skömmu eftir að Ísraelsstjórn hafnaði vopnahléstillögum hryðjuverkasamtakanna Hamas.
Herskár hluti Hamas-samtakanna hefur lýst árásinni á hendur sér.
AFP segir frá.