Grimmileg orrusta í Karkív

Um 4.500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á …
Um 4.500 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín á síðustu dögum, eftir áhlaup Rússa. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti segir að grimmilegir bardagar standi nú yfir við hluta landamæranna að Karkív-héraði, þar sem þúsundir manna eru á vergangi eftir skyndiáhlaup Rússa.

„Varnarbardagar og grimmileg orrusta halda áfram á stórum hluta landamæra okkar,“ sagði Selenskí í ræðu í dag.

Hann telur tilganginn með árásum Rússa vera að dreifa úr liðsafla Úkraínumanna og grafa undan baráttuvilja Úkraínumanna.

Fleiri þúsund­ manns hafa flúið heim­ili sín í Karkív-héraði í norðaust­ur­hluta Úkraínu eft­ir stöðugar árás­ir Rússa á svæðinu síðan á föstu­dag.

Rúss­neska varn­ar­málaráðuneytið hef­ur gefið út að Rúss­ar hafi nú náð níu landa­mæraþorp­um á sitt vald. Ráðuneytið seg­ir að her­sveit­ir þess hafi „kom­ist djúpt inn fyrir varn­ir óvin­ar­ins“.

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti. AFP/Petras Malukas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert