Þúsundir flýja eftir árásir Rússa

Íbúar í landamæraþorpum í Úkraínu hafa flúið heimili sín eftir …
Íbúar í landamæraþorpum í Úkraínu hafa flúið heimili sín eftir innrás Rússa á föstudag. AFP/Roman Pilipey

Þúsundir hafa flúið heimili sín í Karkív-héraði í norðausturhluta Úkraínu eftir stöðugar árásir Rússa á svæðinu síðan á föstudag. 

Rússneska varnarmálaráðuneytið hefur gefið út að Rússar hafi nú náð níu landamæraþorpum á sitt vald. Ráðuneytið segir að hersveitir þess hafi „komist djúpt inn í varnir óvinarins“.

Úkraínski herinn sagðist halda aftur af frekari árangri Rússa.

Óbreyttir borgarar fallið í árásunum

„Alls hafa 4.073 manns verið fluttir á brott,“ segir Oleg Synegubov, héraðsstjóri Karkív, á samfélagsmiðlum.

Úkraínsk stjórnvöld hafa gefið út að óbreyttir borgarar hafi fallið í árásum Rússa. Nokkrir féllu í skotárásum í gær og einn fannst látinn í rústum í nótt samkvæmt lögreglu í landamærabænum Vovchansk.

Bygging hrundi í rússnesku landamæraborginni Belgorod eftir árás Rússa með þeim afleiðingum að sautján manns særðust. 

Yfirvöld á svæðinu hafa varað við því að tala látinna og særðra geti hækkað eftir því sem björgunaraðgerðum miðar áfram.

Staðan á svæðinu versnað verulega

„Tilraunir rússneskra hermanna til að brjótast í gegnum varnir okkar hafa verið stöðvaðar,“ sagði Oleksandr Syrsky, yfirhershöfðingi Úkraínu.

Hann sagði þó að ástandið á Karkív-svæðinu hafi versnað verulega og væri flókið. „Úkraínskar hersveitir gera allt sem þær geta til að halda varnarlínum sínum sterkum.“

Úkraínskir embættismenn höfðu varað við því í margar vikur að Rússar gætu reynt að ráðast á landamærahéruð sín í norðausturhluta landsins og aukið þannig forskot sitt á meðan Úkraína glímir við tafir á aðstoð frá Vesturlöndunum og skort á mannafla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert