Fundi frestað og viðræður á viðkvæmu stigi

Aldís Magnúsdóttir segir viðræður á viðkvæmu stigi.
Aldís Magnúsdóttir segir viðræður á viðkvæmu stigi.

Fundi í kjaraviðræðum SA annars vegar og Sameykis og FFR hins vegar lauk um klukkan 22.30 í kvöld.

Aldís Magnúsdóttir sáttasemjari segir viðræður á viðkvæmu stigi en þeim hafi verið frestað fram á morgun. 

Að óbreyttu munu starfsmenn Sameykis og FFR á Keflavíkurflugvelli hefja verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 8. maí og munu þær standa til 20. maí með hléum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert