Hafa fundað í tíu tíma og eru enn að

Samninganefndir FFR, Sameyki og SA funda enn.
Samninganefndir FFR, Sameyki og SA funda enn. mbl.is/Eyþór

Samninganefndir SA annars vegar og Sameykis og FFR hins vegar sitja enn að í Karphúsinu um tíu klukkustundum frá því fundur hófst klukkan 12 á hádegi.

Hvort það þýði að samningsaðilar séu að ná saman skal ósagt látið en fyrir liggur að boðað hefur verið til verkfallsaðgerða sem eiga að hefjast á miðvikudag. 

Alltaf von við samningaborðið

Unnar Örn Ólafsson formaður FFR sagði í samtali við mbl.is á dögunum að enginn ágreiningur væri um launaliðinn heldur væru aðrir þættir til umræðu.

Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri SA sagði í samtali við mbl.is fyrr í kvöld að hún væri bjartsýn og að alltaf væri von þegar fólk sæti enn við samningaborðið. 

Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.
Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis. mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert