Tæpar fimmtán gráður mældust í dag

Tæpar fimmtán gráður mældust á Egilsstöðum í dag.
Tæpar fimmtán gráður mældust á Egilsstöðum í dag. mbl.is/Sigurður Bogi

Mesti hiti landsins mældist á Egilsstöðum í dag eða 14,9 gráður. Þar á eftir mældust 13,6 gráður á Hallormsstað og 12,7 gráður á Seyðisfirði. 

Heilt yfir var blíðviðri á landinu í dag, en minnsti hiti á landinu mældist á Gauksmýri eða -3,2 gráður.

Þar á eftir mældust -2,5 gráður við Hauga og -2,2 gráður í Árnesi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert