Vikan var fjörug, sólrík og sæt á Instagram. Fræga fólkið er komið í sumarfíling og því fylgja að sjálfsögðu tilheyrandi skvísu- og töffarastælar. Sunneva Eir Einarsdóttir sýndi frá ljúfa lífinu í Svíþjóð á meðan Hugrún Birta Egilsdóttir rifjaði upp sólríkar stundir á Puerto Rico.
Helga Þóra Bjarnadóttir brá undir sig betri fætinum ásamt kærasta sínum Brynjari Bjarkasyni í hljómsveitinni ClubDub.
Erna María Björnsdóttir birti fjölskyldumynd. Hún og Aron Can eiga bæði son og hund og eru ljónheppin með lífið.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra fór á Kramber með bræðrum sínum, Magnúsi Sigurbjörnssyni albróður sínum og Andra Ingasyni aukabróður sínum.
Guðmundur Birkir Pálmason, Gummi kíró, er alltaf sólarmegin í lífinu. Meðan landsmenn eru enn þá smá í dúnúlpunni fann hann sólina og klæddi sig í hörbuxur og prjónaðan hlýrabol.
Sylvía Erla Melsted tónlistarmaður og rithöfundur naut lífsins á Ítalíu. Nánar tiltekið við Como-vatn sem er sögufrægur staður. Með í för var kærastinn, Róbert Samaniego, eða Done-gæinn eins og hann er stundum kallaður.
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi stoppaði í sjoppu.
Helen Óttarsdóttir fyrirsæta birti frekar heita mynd af sér.
Nadía Sif Líndal kann að skemmta sér og er djammið alls ekki bara í miðbæ Reykjavíkur. Það getur til dæmis verið á Akranesi eins og hún bendir réttilega á.
Maríanna Pálsdóttir, snyrtifræðingur á Snyrtistofu Reykjavíkur og pistlahöfundur á Smartlandi, fór til Rómar og naut þess í botn.
Anna Eiríksdóttir leikfimisdrottning í Hreyfingu fór til Tenerife. Hvar er betra að sóla sig og njóta lífsins en einmitt á bát?
Heiðdís Rós Reynisdóttir, förðunarfræðingur á Miami í Flórída, sendi móður sinni kveðju á mæðradaginn.
Þjálfarinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir segir lífið vera miklu skemmtilegra með unnusta sínum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni, betur þekktur sem Kleini.
Inga Lind Karlsdóttir, eigandi Skot Productions, deildi mynd af sér og dóttur sinni Hrafnhildi í tilefni af mæðradeginum.
Útvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, er kominn á nýjan bíl og því fylgir greinilega nýr stíll.
Tónlistarkonan Laufey Lín Jónsdóttir steig á svið í spjallþætti Jimmy Fallon, The Tonight Show Starring Jimmy Wallon, á fimmtudaginn og flutti lagið Goddess.
Birnir Boði Enoksson, sonur Birgittu Lífar Björnsdóttur, fagnaði þriggja mánaða afmæli sínu með þyrluflugi – ekki amalegt!
Flugfreyjan og fyrrverandi fegurðardrottningin Hugrún Birta Egilsdóttir er spennt fyrir því að heimsækja Puerto Rico aftur einn daginn.
Áhrifavaldurinn Lára Clausen frumsýndi nýtt útlit á Instagram í vikunni, en hún lét hárið fjúka og skartar nú styttra hári sem klæðir hana án efa vel.
Feðgarnir Bubbi Morthens og Brynjar Úlfur Morthens stigu á svið Borgarleikhússins og fluttu eitt þekktasta lag Bubba saman, Stál og hnífur.
Forsetaframbjóðendurnir Jón Gnarr og Ásdís Rán Gunnarsdóttir skelltu í rándýra forsetasjálfu!
TikTok-stjarnan Embla Wigum fór á viðburð með förðunardrottningunni Charlotte Tilbury og deildi glæsilegum myndum frá kvöldinu.
Tónlistarmaðurinn Ísleifur Atli Matthíasson, betur þekktur sem ISSI, gaf það út að ný tónlist væri á leiðinni.
Knattspyrnukonan Fanndís Friðriksdóttir fagnaði hækkandi aldri í vikunni, en hún varð 34 ára og naut dagsins í sólinni.
Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir naut veðurblíðunnar í Lund í Svíþjóð í vikunni, en hún var þar í vinkvennaferð.
Förðunarfræðingurinn Lilja Dís Smáradóttir er greinilega með tískuna á hreinu, en hún klæddist gallaefni frá toppi til táar.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik átti góða viku, en eftir leik þeirra á móti Eistlandi á laugardaginn var ljóst að liðið yrði á meðal þáttökuliða á heimsmeistaramótinu í Króatíu, Danmörku og Noregi í upphafi næsta árs. Björgvin Páll Gústavsson fékk góðar móttökur eftir sigurleik í vikunni!