Enski knattspyrnumaðurinn Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, vill sjá breytingar á myndbandsdómgæslunni.
Enska knattspyrnufélagið Wolverhampton Wanderers hefur lagt fram formlega tillögu um að enska úrvalsdeildin afnemi notkun myndbandsdómgæslu, VAR, við dómgæslu leikja frá og með næsta tímabili.
Tilagan verður tekin fyrir með formlegum hætti á ársfundi ensku úrvalsdeildarinnar þann 6. júní næstkomandi þar sem öll 20 félögin í deildinni greiða atkvæði um hana.
Eigi tillagan að ná fram að ganga verður 2/3 meirihluti að samþykkja hana, sem eru 14 af 20 félögum ensku úrvalsdeildarinnar.
Í samtali við the Sun segir Maguire að myndbandsdómgæslan virki ekki nema er kemur að einu atriði, rangstöðu.
Hann leggur til að dómarasambandið ætti aðeins að beita því er kemur að rangstöðu og ekki öðrum atriðum.