Knattspyrnukonan Emilía Ásgeirsdóttir skoraði sigurmark Nordsjælland gegn Emelíu Óskarsdóttir og stöllum í Köge í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Markalaust var í hálfleik en Emilía kom inn á á 60. mínútu og skoraði svo sigurmarkið á 90. mínútu.
Emelía var í byrjunarliði Köge en var tekin af velli á sömu mínútu og Emilía kom inn á af bekknum hjá Nordsjælland.