Erling Haaland svarar gagnrýni Keane

Erling Haaland skoraði fjögur mörk í gær.
Erling Haaland skoraði fjögur mörk í gær. AFP/ Darren Staples

Knattspyrnumaðurinn Erling Haaland svaraði gagnrýni Roy Kea­ne, fyrr­ver­andi fyr­irliða Manchester United, eftir leik Manchester City gegn Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni en Haaland skoraði fjögur mörk í 5:1 sigri í gær.

Keane sagði að Haaland spilar eins og framherji í C-deild eftir markalaust jafntefli City gegn Arsenal í lok mars og var spurður út í það eftir leikinn í gær.

Trufluðu ummæli Roy Keane þig?

„Mér er alveg sama um þann mann svo allt er í lagi,“ svaraði Haaland en Keane tæklaði faðir hans, Alfie Haaland, illa á sínum tíma í leik Manchester United gegn City.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert