Knattspyrnukonan Tanya Boychuk skoraði sigurmark Vittsjö gegn Íslendingaliði Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í dag, 1:0.
Tanya fór frá Þrótti í Vittsjö fyrir tímabilið í ár og skoraði sigurmark liðins á síðustu mínútu leiksins í dag. Hún var mikilvægur partur af liðinu á síðasta tímabili sem lenti í þriðja sæti í Bestu deild kvenna.
Katla Maria Þórðardóttir, Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir og Bergþóra Sól Ásmundsdóttir voru allar í byrjunarliði Örebro en liðið er án stiga eftir fjóra leiki.