Arnór Ingvi Traustason skoraði sannkallað draumamark í leik Norrköping og AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið dugði þó skammt þar sem heimamenn í AIK fóru með sannfærandi sigur af hólmi.
Arnór Ingvi minnkaði muninn í 3:2 með viðstöðvalausu utanfótarskoti langt fyrir utan teig. AIK komst í 3:0 en gestirnir í Norrköping eygðu von um endurkomu með marki Arnórs. AIK setti þá fótinn aftur á bensíngjöfina og leiknum lauk með 6:2 sigri stórliðsins frá Stokkhólmi.
Arnór fór af velli fyrir landa sinn, Ísak Andra Sigurgeirsson á 82. mínútu.
Markið má sjá hér fyrir neðan
PANG! Arnór Traustason med en rejäl smällkaramell och IFK Norrköping har fått en drömstart på andra halvleken mot AIK ⚪🔵
— discovery+ sport 🇸🇪 (@dplus_sportSE) May 5, 2024
📲 Se matchen på https://t.co/ocJJkbIhfX pic.twitter.com/z8ae85KK6y