PSV Eindhoven er Hollandsmeistari í fótbolta karla árið 2024 eftir 4:2 sigur á Sparta Rotterdam á heimavelli í dag.
Metinho kom gestunum yfir eftir aðeins átta mínútur en Said Bakari varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark á 19. mínútu.
Joahn Bakayoko kom svo PSV yfir á 26. mínútu og aftur var það sjálfsmark sem jafnaði metin en í þetta sinn var það Olivier Boscagli.
Staðan var 2:2 í hálfleik en Boscagli bætti upp fyrir sjálfsmarkið á 67. mínútu þegar hann skoraði þriðja mark PSV og Jordan Teze bætti svo við fjórða rúmlega tíu mínútum síðar.
PSV er nú með 12 stiga forystu á Feyenood sem er í öðru sæti og því titillinn kominn í hús þegar tvær umferðir eru eftir.