Lionel Messi og Luis Suárez áttu stórleik í 6:2 sigri Inter Miami á New York Red Bulls í bandarísku MLS-deildinni í fótbolta í nótt.
Messi átti þátt í öllum mörkum Miami en hann lagði upp fimm þeirra, sem er stoðsendingamet í deildinni og skoraði svo eitt.
Luis Suárez skoraði þrjú mörk eftir stoðsendingu frá Messi og Matias Roja skoraði tvö. Suárez lagði svo upp markið sem Messi skoraði.
Miami var 1:0 undir í hálfleik og öll sex mörk liðsins komu á rétt rúmlega hálftíma í seinni hálfleik.
MESSI IS A CHEAT CODE 🐐
— Major League Soccer (@MLS) May 5, 2024
▪️ Record for assists in a game (5)
▪️ Record for goal contributions in a game (6)
▪️ And he did it all in the second half pic.twitter.com/Zc3g5fjakf
Messi hefur nú skorað tíu mörk og lagt upp níu í átta leikjum í MLS-deildinni á þessu tímabili.