Orlando Magic vann, 103:96, sigur á Cleveland Cavaliers og liðin mætast því í oddaleik á morgun. Sigurvegari leiksins fær sæti í undanúrslitum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta austan megin.
Donovan Mitchell átti frábæran leik fyrir Cleveland og skoraði 50 stig en það dugði ekki til og liðin mætast í sjöunda sinn á klukkan 17.00 að íslenskum tíma á sunnudaginn.
Dallas Mavericks sló LA Clippers út í Vesturdeildinni, 4:2, og mætir Oklahoma City Thunder í undanúrslitum.
Luka Doncic var atkvæðamestur fyrir Dallas en hann skoraði 28 stig, tók sjö fráköst og gaf 13 stoðsendingar.
Mavs duo Luka Doncic and Kyrie Irving played phenomenal in Game 6 to advance to the West Semis!
— NBA (@NBA) May 4, 2024
Doncic: 28 PTS, 13 AST, 7 REB
Irving: 30 PTS, 5 3PM, 6 REB
DAL visits OKC for Game 1 on Tuesday at 9:30pm/et on TNT 🍿 pic.twitter.com/Q5xLzXt0lR
James Harden var svo atkvæðamestur fyrir LA Clippers en hann skoraði 16 stig, tók sjö fráköst og gaf 13 stoðsendingar.