Stjörnuspá mán. 13. maí. 2024

Stjörnuspá
mán. 13. maí. 2024

21. mars - 19. apríl

Þú lendir í útistöðum við náinn vin og tilfinningar þínar eru í uppnámi. Forðastu að vera með stóryrtar yfirlýsingar um líf annarra.

20. apríl - 20. maí

Þú kemst að því að þú hefur gengið of langt gagnvart sjálfum þér. Gættu þess að hleypa ekki of mörgum að þér og vandaðu val þeirra.

21. maí - 20. júní

Ekki lenda í rifrildi við samstarfsfólk og ekki kenna öðrum um þótt snurða hlaupi óvænt á þráðinn. Það er óþarfi að segja allt sem maður hugsar.

21. júní - 22. júlí

Það hefur ekkert upp á sig að stinga höfðinu í sandinn. Hægðu á þér og teldu upp að tíu áður en þú hefst handa. Vertu varkár og segðu ekkert fyrr en þú ert alveg viss.

23. júlí - 22. ágúst

Þú hefur ákveðnar hugmyndir en vinir þínir vilja draga úr framkvæmdagleði þinni. Til að vera í nú-inu þarftu að hætta sjálfsgagnrýni.

23. ágúst - 22. september

Ekki hengja þig í smáatriði eða hræðast að geta ekki gert allt. Ef þú ferð of geyst í hlutina áttu á hættu að missa stuðning þeirra, sem skipta sköpum upp á framhaldið.

Vog
23. september - 22. október

Vertu opinn fyrir skemmtilegum hugmyndum. Mundu að hver er sinnar gæfu smiður og þú getur ekki sakast við neinn nema sjálfan þig ef málin eru komin í óþægilegan farveg.

23. október - 21. nóvember

Þú gætir verið dálítið yfirþyrmandi í dag vegna þess að þú vilt sannfæra aðra um að þú hafir rétt fyrir þér. Farðu þér hægt í peningamálum og málefnum hjartans.

22. nóvember - 21. desember

Láttu aðra sem mest um sín mál og einbeittu þér að því að leysa þín eigin. Láttu sjálfan þig ganga fyrir til að byrja með.

22. desember - 19. janúar

Nú væri kjörið að gera umbætur heimafyrir eða í vinnunni. Til þess eru ýmsar leiðir og þú þarft að velja þína af kostgæfni.

20. janúar - 18. febrúar

Það hefnir sín síðar að stinga höfðinu í sandinn og halda að öll vandamál séu þar með úr sögunni. Gamall vinur hefur samband og kemur þér í betra skap.

19. febrúar - 20. mars

Þú þarft að taka þig saman í andlitinu og einbeita þér að því sem fyrir liggur. Notaðu kvöldið til að endurnýja orku þína.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og