Minnst 34 létust í flóði

Minnst 34 hafa látið lífið.
Minnst 34 hafa látið lífið. AFP/Rezan Soleh

Minnst 34 létu lífið í flóði í vesturhluta Indónesíu í gær. Þá er sextán manns saknað. 

Mikil rigning olli flóðinu. Vegna rigningarinnar tók kalt hraun, frá einu virkasta eldfjalli landsins, að renna og skemmdi það heimili, vegi og moskur. Fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín og leita skjóls annars staðar.

Björgunarsveitir, lögregla, hermenn og sjálfboðaliðar taka þátt í björgunaraðgerðum. 

Mikið tjón er á vegum.
Mikið tjón er á vegum. AFP/Rezan Soleh
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka