Fjaðrárgljúfur friðlýst

Frá vinstri: Fanney Ásgeirsdóttir þjóðgarðsvörður, Sveinn Hreiðar Jensson sveitastjórnarmaður, Guðlaugur …
Frá vinstri: Fanney Ásgeirsdóttir þjóðgarðsvörður, Sveinn Hreiðar Jensson sveitastjórnarmaður, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Auður Björnsdóttir sveitastjórnarmaður og Björn Helgi Snorrasson, sveitastjórnarmaður og varaoddviti. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur friðlýst Fjaðrárgljúfur.

Mörk hins friðlýsta svæðis ná yfir austurhluta gljúfursins og afmarkað svæði ofan gljúfranna austan megin. Það svæði er í eigu Hverabergs ehf.

Fram kemur í tilkynningu að friðlýsingin sé unnin í góðu samstarfi við Hveraberg og sveitarfélagið Skaftárhrepp.

Vinna við friðlýsinguna hófst í framhaldi af samningi sem Guðlaugur Þór og Hveraberg skrifuðu undir í janúar síðastliðnum og kveður á um samstarf um verndun Fjaðrárgljúfurs og uppbyggingu innviða á svæðinu.

„Fjaðrárgljúfur er gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og allt sem bendir til þess að ásókn ferðamanna á svæðið muni aukast á komandi misserum. Það er því mjög ánægjulegt að geta í samstarfi við landeigendur og Skaftárhrepp friðlýst svæðið og skapað því þá umgjörð sem nauðsynleg er til verndar náttúrunni á svæðinu og til móttöku ferðamanna,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

Fjaðrárgljúfur er um 1,5 km á lengd og mesta dýpt þess er um 100 metrar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka