Sextán ára hetja á Hlíðarenda

Ágústa María, númer 5, fyrir landsleik.
Ágústa María, númer 5, fyrir landsleik. Ljósmynd/KSÍ

Hin 16 ára gamla Ágústa María Valtýsdóttir reyndist hetja KH er liðið vann eins marks sigur á Augnabliki í 2. deild kvenna í fótbolta á Hlíðarenda í kvöld, 1:0.

Ágústa skoraði sigurmarkið á 47. mínútu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur unglingalandsliðskonan skorað 11 mörk í 32 leikjum í 2. deildinni.

KH er með þrjú stig eftir einn leik og Augnablik þrjú eftir tvo leiki.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert