Ingvar vann Sindratorfæruna

Verðlaunahafarnir í Sindratorfærunni á Hellu í dag.
Verðlaunahafarnir í Sindratorfærunni á Hellu í dag. Ljósmynd/Kári Rafn

Ingvar Jóhannesson reyndist hlutskarpastur í Sindratorfærunni sem fór fram í dag á Hellu að viðstöddum 5.000 áhorfendum.

Keppnin var gríðarlega spennandi og var það Páll Jónsson á Rollunni sem leiddi framan af en eftir að hafa náð 15. besta tímanum í ánni varð hann að lokum að sætta sig við þriðja sætið.

Ingvar stóð uppi sem sigurvegari eftir frábæran akstur allan daginn.

Þór Þormar Pálsson hafnaði í öðru sæti eftir að hafa skipt litum alla keppnina, en bíll hans Thor var ýmist rauður, blár eða gulur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka