Salthúsið endurnýjað

Salthúsið, gula húsið fyrir miðju, er hluti af Síldarminjasafninu á …
Salthúsið, gula húsið fyrir miðju, er hluti af Síldarminjasafninu á Siglufirði, sem er mjög vinsælt meðal erlendra ferðamanna. mbl.is/Sigurður Ægisson

Smiðir frá Byggingafélaginu Bergi á Siglufirði hafa undanfarna mánuði lagfært gólfbita og burðarvirki og endurnýjað gólfið á efri hæðinni í Salthúsinu, nýjustu byggingu Síldarminjasafnsins. Um er að ræða fyrsta áfanga vinnu innandyra, en stefnt er að því að taka húsið í notkun í áföngum eftir því sem verkinu miðar áfram.

Grunnur þess var steyptur í byrjun ágústmánuðar 2014. Húsið var upphaflega byggt á Patreksfirði seint á 19. öld og flutt til Akureyrar 1946. Talið er að það hafi einnig staðið á Siglufirði á fyrri hluta 20. aldar.

Efri hæðin gengur í endurnýjun lífdaga í höndum siglfirskra smiða.
Efri hæðin gengur í endurnýjun lífdaga í höndum siglfirskra smiða. mbl.is/Sigurður Ægisson

Aldrei fleiri komið en í fyrra

Það var mælt upp og teiknað af Argos ehf. fyrir Þjóðminjasafnið árið 1998 og því næst tekið niður og flutt að Naustum á Akureyri 1999 þar sem viðir þess voru geymdir þar til sumarið 2014 að þeir voru fluttir til Siglufjarðar; gólf- og lofteiningarnar 13. júní og veggeiningar og bitastæða 17. júní. Var farið sjóleiðina.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þá forsætisráðherra, tók fyrstu skóflustunguna 27. maí sama ár og í kjölfarið var grafið fyrir sökklum.

Húsið er 25,74x11,98 m að utanmáli og 308 m2 að grunnfleti, ein hæð með portbyggðu risi, og stendur á lóðinni milli Roaldsbrakka og Gránu.

Aldrei hafa fleiri komið í Síldarminjasafnið en í fyrra, en þá sóttu rúmlega 26.000 manns það heim. Þar af voru rúmlega 62% erlendir ferðamenn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg
26.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 1.304 kg
Ýsa 696 kg
Steinbítur 171 kg
Keila 77 kg
Samtals 2.248 kg
26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg

Skoða allar landanir »