Leggja til 9% meiri heildarafla

„Ætla má að aflaverðmæti þessarar viðbótar, ef af verður, verði …
„Ætla má að aflaverðmæti þessarar viðbótar, ef af verður, verði um 5,5 milljarðar og útflutningsverð kringum 12 milljarðar. Hér er því um afar mikla hagsmuni að ræða.“ mbl.is/Ómar

Landssamband smábátaeigenda leggur til að leyfilegur heildarafli á komandi fiskveiðiári verði rúmum 9% meiri en Hafrannsóknastofnun hefur þegar ráðlagt stjórnvöldum. Leggur sambandið til að heimilt verði að veiða 289 þúsund tonn af þorski á fiskveiðiárinu 2018/2019, eða 24.600 tonnum meira en Hafrannsóknastofnun ráðlagði.

Eins og 200 mílur greindu frá í síðustu viku leggur stofnunin til að afla­mark þorskveiða verði aukið um 3% á næsta fisk­veiðiári, 2018/​2019, í sam­ræmi við afla­reglu stjórn­valda. Þar með fari þorskkvót­inn úr 257,6 þúsund tonn­um á yf­ir­stand­andi fisk­veiðiári í 264,4 þúsund tonn.

Fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda að fulltrúar sambandsins hafi átt fund með sjávarútvegsráðherra föstudaginn 15. júní, þar sem honum hafi verið kynntar tillögur félagsins um hámarksafla á næsta fiskveiðiári.

Tillögur LS bornar saman við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.
Tillögur LS bornar saman við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Um afar mikla hagsmuni að ræða

Sambandið hefur á undanförnum árum hvatt til meiri þorskveiði en tillögur Hafró hafa boðað. Bent er nú á að undangengin sjö ár hafi hlutfall þess sem veitt hafi verið úr veiðistofninum að meðaltali verið 18,4%, en lægst hafi það verið árið 2015, 17,7%. Í aflareglu stjórnvalda sé hins vegar gert ráð fyrir að hlutfallið sé 20%.  

Viðbót sú sem LS leggur til að þessu sinni er sögð vera mismunur á veiðihlutfalli 2017 (afli/veiðistofn) og því 20% hlutfalli sem nýtingarstefna stjórnvalda geri ráð fyrir.

„Ætla má að aflaverðmæti þessarar viðbótar, ef af verður, verði um 5,5 milljarðar og útflutningsverð kringum 12 milljarðar. Hér er því um afar mikla hagsmuni að ræða,“ segir á vef LS.

Fram kemur að sambandið hafi hvatt ráðherrann til að fara að tillögunum, enda telji félagið að meginstef aflareglunnar sé að árlega séu veidd 20% af veiðistofni. Sambandið hafi sömuleiðis bent á að staða stofnsins nú væri afar góð, en fara þyrfti aftur um tæpa sex áratugi til að finna svipað ástand og nú sé.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »