Fiskkaup kaupa Sjóla ehf.

Kristrún RE, skip Fiskkaupa.
Kristrún RE, skip Fiskkaupa.

Fiskkaup hf. hafa lokið kaupum á öllu útgefnu hlutafé í útgerðinni Sjóla ehf., en í kaupunum felast aflaheimildir útgerðarinnar og báturinn Njáll RE.

Þetta staðfestir Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson, hjá Fiskkaupum hf., í samtali við 200 mílur.

„Fyrst og fremst er þetta hugsað til þess að renna styrkari stoðum undir rekstur félagsins með auknum aflaheimildum. Með auknum gjöldum hefur stærðarhagkvæmnin aldrei verið mikilvægari, eins og sést hefur á samþjöppuninni sem hefur átt sér stað í greininni síðustu misseri,“ segir Ásbjörn.

Ásbjörn segir veiðigjöldin hafa fimmfaldast á milli ára.
Ásbjörn segir veiðigjöldin hafa fimmfaldast á milli ára. mbl.is/Kristinn Magnússon

Veiðigjöldin fimmfaldast á milli ára

Ásbjörn segir veiðigjöld fyrirtækisins hafa fimmfaldast á milli ára, þegar hann er spurður um stöðuna í útgerðinni um þessar mundir.

„Maður býr náttúrlega við gríðarlega óvissu allan ársins hring í sjávarútvegi og það er kannski þessi pólitíska óvissa sem er hvað verst. En á síðasta fiskveiðiári greiddum við rúmlega 158 milljónir í veiðigjöld, sem er fimmföldun frá fiskveiðiárinu þar á undan,“ segir hann.

„Mér finnst algjörlega ástæða til þess að taka meira tillit til fullvinnslu aflans um borð, í reiknigrunninum við ákvörðun veiðigjalda. En afurðaverð á helstu mörkuðum hefur verið ágætt og veiðin fín það sem af er ári, þannig maður verður bara að vera bjartsýnn á framhaldið.“

Fiskkaup eiga og gera út beitningavélaskipið Kristrúnu RE-177 og krókaaflamarksbátinn Jón Ásbjörnsson RE-777. Afli báta félagsins er áætlaður tæp 3.500 tonn á ársgrundvelli, að því er fram kemur á vef útgerðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 109,92 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,01 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 109,92 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,01 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »