Skipverjinn snéri aftur til Ísafjarðar

Togarinn Notts County á strandstað. Þarna var búið að bjarga …
Togarinn Notts County á strandstað. Þarna var búið að bjarga skipverjum og er myndin tekin daginn eftir, þegar sótt var lík þess sem lést um borð. Ljósmynd/Valdimar Jónsson

Skotinn John Stanley Mutch, sem var í áhöfn breska togarans Notts County  þegar hann strandaði á Snæfjallaströnd í febrúar 1968, færði á miðvikudag Byggðasafni Vestfjarða á Ísafirði minningarskjöld sem hann saumaði út til minningar um Robert Bowie sem lést, ásamt flugmiðanum heim frá íslandi og mynd af togaranum á strandstað, að því er fram kemur í umfjöllun Bæjarins Besta.

Togarinn strandaði í aftakaveðri í febrúar fyrir 50 árum. Sama dag fórst mótorbáturinn Heiðrún II frá Bolungarvík með sex manna áhöfn, þar af föður og tveimur sonum, sem og breski togarinn Ross Cleveland með 19 menn innanborðs.

Sæmdir orðum

Varðskipið Óðinn kom skipverjunum til bjargar og var Sigurður Þ. Árnason, fyrrverandi skipherra Landhelgisgæslunnar, sæmdur bresku OBE-orðunni (e. Officer of the Most Excellent Order of the British Empire) fyrir björgun skipverjanna af Notts County. Fyrsti stýrimaður Óðins, Sigurjón Hannesson og annar stýrimaður, Pálmi Hlöðversson, hlutu þá hvor um sig orðuna The Sea Gallantry Medal of Gold.

„Ég hef aldrei lent í öðru eins veðri og þessa daga,“ var haft eftir Sigurði í Morgunblaðinu í fyrra. „Ég er að verða níræður núna, og maður hefur aldrei starfað við neitt nema sjó og aftur sjó. Samt hef ég ekki séð nokkuð þessu líkt,“ sagði hann.

Óðinn á siglingu. Tveir stýrimenn úr áhöfn skipsins fóru á …
Óðinn á siglingu. Tveir stýrimenn úr áhöfn skipsins fóru á bát yfir til togarans Notts County.
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 405,57 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 200,44 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,36 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 100,96 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 163,13 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.511 kg
Steinbítur 5.003 kg
Hlýri 610 kg
Langa 165 kg
Ýsa 147 kg
Ufsi 95 kg
Keila 34 kg
Karfi 26 kg
Skarkoli 11 kg
Samtals 15.602 kg
26.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 256 kg
Grásleppa 149 kg
Samtals 405 kg
26.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 1.303 kg
Þorskur 303 kg
Samtals 1.606 kg

Skoða allar landanir »