„Það var bræla hérna í tvo daga“

Sjö íslensk skip eru nú á kolmunnaveiðum austur af Færeyjum. …
Sjö íslensk skip eru nú á kolmunnaveiðum austur af Færeyjum. Heldur rólegt er á miðunum. Ljósmynd/Börkur Kjartansson

Sjö íslensk skip eru nú á kolmunnaveiðum austur af Færeyjum. Tómas Kárason, skipstjóri nóta- og togveiðiskipsins Beitis NK, segir heldur rólegt vera á miðunum. „Það var bræla hérna í tvo daga og svo er fínt veður núna. Við erum bara á fyrsta holi,“ segir hann.

Framan af hefur kolmunnaveiði gengið þokkalega og landaði Beitir 3.100 tonnum úr færeysku lögsögunni í Neskaupstað á mánudag.

Tómas Kárason, skipstjóri Beitis NK.
Tómas Kárason, skipstjóri Beitis NK. Ljósmynd/Þorgeir Baldursson

„Hún var ágæt fyrir brælu. Búið að vera svakalega rólegt síðan í gær,“ svarar skipstjórinn spurður hvernig veiðin gengur nú. Hann segist ekki geta sagt til um hversu langur túrinn verði að þessu sinni enda velti það á hvernig veiðum miðar. „En maður veit aldrei. Það fer kannski eitthvað að gefa. Allavega fer rólegt af stað eftir bræluna,“ bætir Tómas við og segir jafnframt mörg skip á svæðinu.

Íslensku skipin sem nú eru á sama svæði og Beitir eru Huginn VE-055, Víkingur AK-100, Margrét EA-710, Jón Kjartansson SU-111, Venus NS-150 og Bjarni Ólafsson AK-070.

Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að skip fyrirtækisins hafi hafið kolmunnaveiðar í færeysku lögsögunni í síðasta mánuði og að Bjarni Ólafsson og Beitir þegar hafa landað fyrstu förmunum í Neskaupstað. Þá hafi þegar verið landað um 5 þúsusund tonnum og var Börkur NK á leið til hafnar í gær með tvö þúsund tonn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »