Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum mun ekki falla frá skaðabótakröfu sinni á hendur ríkinu vegna úthlutunar makrílkvóta. Frá þessu greindi Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Hæstiréttur hefur viðurkennt bótaskyldu íslenska ríkisins vegna úthlutunar aflaheimilda á makríl á árunum 2011 til 2014, þar sem dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið fylgt reglum sem kveða á um að miða skuli útdeilingu við veiðireynslu.
Sjö útgerðarfélög stefndu ríkinu í kjölfarið til greiðslu skaðabóta og gerðu sameiginlega kröfu upp á um 10,2 milljarða króna. Fimm af félögunum sjö greindu í síðustu viku frá því að þau hefðu fallið frá kröfunni, en stuttu áður hafði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hvatt félögin til þess, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hótað því að komi til skaðabótagreiðslna skuli þær greiddar úr vasa útgerðarinnar, væntanlega með hærra veiðigjaldi. Eftir standa tvær, Huginn og Vinnslustöðin.
Í viðtalinu á Sprengisandi sagði Sigurgeir að hann væri afskaplega feginn að vera ekki í hópi þeirra útgerða sem drógu málsókn til baka. „Það er engin launung á því að Ísfélagsmenn sögðu okkur ekki satt þegar þeir kynntu hvað þeir ætluðu að gera,“ segir Sigurgeir, en segist ekki vilja fara nánar út í það.
Fréttin var uppfærð klukkan 14:44
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 1.7.24 | 399,10 kr/kg |
Þorskur, slægður | 1.7.24 | 368,86 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 1.7.24 | 384,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 1.7.24 | 306,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 1.7.24 | 156,42 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 1.7.24 | 298,77 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Digri NS 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 832 kg |
Samtals | 832 kg |
2.7.24 Anna EA 83 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 779 kg |
Samtals | 779 kg |
2.7.24 Víðir EA 423 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 810 kg |
Samtals | 810 kg |
2.7.24 Sæotur NS 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
2.7.24 Votaberg ÞH 103 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 790 kg |
Samtals | 790 kg |
2.7.24 Bára NS 126 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 786 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 788 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 1.7.24 | 399,10 kr/kg |
Þorskur, slægður | 1.7.24 | 368,86 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 1.7.24 | 384,95 kr/kg |
Ýsa, slægð | 1.7.24 | 306,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 1.7.24 | 156,42 kr/kg |
Ufsi, slægður | 1.7.24 | 199,56 kr/kg |
Djúpkarfi | 21.6.24 | 304,40 kr/kg |
Gullkarfi | 1.7.24 | 298,77 kr/kg |
Litli karfi | 1.7.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 1.7.24 | 106,00 kr/kg |
2.7.24 Digri NS 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 832 kg |
Samtals | 832 kg |
2.7.24 Anna EA 83 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 779 kg |
Samtals | 779 kg |
2.7.24 Víðir EA 423 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 810 kg |
Samtals | 810 kg |
2.7.24 Sæotur NS 119 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 770 kg |
Samtals | 770 kg |
2.7.24 Votaberg ÞH 103 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 790 kg |
Samtals | 790 kg |
2.7.24 Bára NS 126 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 786 kg |
Karfi | 2 kg |
Samtals | 788 kg |