Ekkert ákveðið um vetursetu rússneskra togara

Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, segir það stjórnvalda að ákveða …
Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri í Hafnarfirði, segir það stjórnvalda að ákveða hvort hætta þurfi að þjónusta rússnesk skip eins og gert hefur verið undanfarin ár. mbl.is/RAX

Um tugur rússneskra frystitogara hefur undanfarin ár landað í Hafnarfirði yfir sumartímann og fram á haust, en skipin hafa verið á karfa- og grálúðuveiðum djúpt suðvestur af landinu.

Um það hvort hætt verði að veita skipunum þjónustu í Hafnarfirði í ljósi stríðsins í Úkraínu, segir Lúðvík Geirsson hafnarstjóri að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun í þeim efnum. Farið verði að fyrirmælum frá stjórnvöldum berist þau og staðan verði væntanlega rædd í hafnarstjórn á næstunni.

Tveir rússnesku togaranna hafa haft vetursetu í Hafnarfirði í vetur eins og undanfarin ár. Annar þeirra var tekinn í flotkví í Hafnarfirði í vikunni og ráðgert er að hinn verði einnig tekinn upp áður en vertíð hefst er líður á aprílmánuð.

Tveir rússneskir togarar hafa verið í Hafnarfirði í vetur. Annar …
Tveir rússneskir togarar hafa verið í Hafnarfirði í vetur. Annar var tekinn í flotkví í vikunni en hinn liggur við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn. mbl.is/Árni Sæberg

Yfir 20 þúsund tonn

Þessi skip eru frá Kaliníngrad, en önnur skip sem sækja í karfa og grálúðu á Reykjaneshrygg koma frá Múrmansk og Pétursborg. Þau skip hafa heimildir til þorskveiða í Barentshafi og að lokinni vertíð þar halda þau til veiða suðvestur af Íslandi.

Skipin hafa landað og millilandað beint í flutningaskip í Hafnarfirði og var afli þeirra liðlega 20 þúsund tonn í fyrra að sögn Lúðvíks. Það magn sem fer í land í Hafnarfirði hefur heldur aukist.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.24 417,41 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.24 507,10 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.24 330,67 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.24 262,73 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.24 143,03 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.24 154,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.24 214,94 kr/kg
Litli karfi 15.5.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.24 Hafsvala BA 252 Grásleppunet
Grásleppa 2.439 kg
Samtals 2.439 kg
16.5.24 Mar AK 74 Handfæri
Þorskur 748 kg
Samtals 748 kg
16.5.24 Emilía AK 57 Handfæri
Þorskur 779 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 799 kg
16.5.24 Teista AK 16 Handfæri
Þorskur 705 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 708 kg
16.5.24 Mardís AK 11 Handfæri
Þorskur 744 kg
Ufsi 101 kg
Karfi 4 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 852 kg

Skoða allar landanir »