Minna sjómenn á að sleppa hlýra

Hlýrinn er þekktur meðafli með öðrum veiðum en stofninn er …
Hlýrinn er þekktur meðafli með öðrum veiðum en stofninn er í sögulegu lágmarki og eru sjómenn hvattir til að sleppa honum. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson

Fiskistofa vekur athygli á mikilvægi þess að sleppa lífvænlegum hlýra í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Hlýrastofninn við Ísland hefur verið í sögulegu lágmarki og hefur hann verið á undanhaldi allt frá árinu 1996.

Samkvæmt aflaupplýsingum á vef stofnunar hefur frá upphafi fiskveiðiársins 1. september 2021 þar til dagsins í dag verið landað rétt rúmu 571 tonni af hlýra en það er 194 tonn umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

„Hlýri er tegund sem á undir högg að sækja, stofninn er lítill og var hlýrinn af þeim sökum settur í aflamark,  til að koma í veg fyrir ofveiði á honum. Því er afar mikilvægt að útgerðir nýti heimild til sleppingar lífvænlegs hlýra og skrái í afladagbók,“ segir í tilkynningu Fiskistofu.

Sammála um að heimila sleppingar

Í kjölfar fundar sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar og útgerðarmanna árið 2020 var ákveðið að leita heimildar til að sleppa lífvænlegum hlýra og fékkst sú heimild 14. desember sama ár.

Takmarkaðar rannsóknir voru þá til á lífslíkum hlýra eftir sleppingu en Hafrannsóknastofnun hafði vakið athygli á að að frumathugun hennar hafi sýnt að „hlýri sem veiddur var í botnvörpu virtist þola 1-2 tíma í móttöku eða á færibandi áður en honum var sleppt.“ Þá voru gerðar áætlanir um frekari rannsóknir á þessu sviði og voru meðal annars hafnar rannsóknir á lífslíkum hlýra eftir línuveiðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.5.24 428,11 kr/kg
Þorskur, slægður 14.5.24 476,70 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.5.24 258,87 kr/kg
Ýsa, slægð 14.5.24 249,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.5.24 128,31 kr/kg
Ufsi, slægður 14.5.24 132,47 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 14.5.24 258,83 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.5.24 Fagra Fríða AK 44 Handfæri
Þorskur 823 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 865 kg
14.5.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 719 kg
Ufsi 34 kg
Samtals 753 kg
14.5.24 Skarphéðinn SU 3 Handfæri
Þorskur 892 kg
Ufsi 52 kg
Karfi 5 kg
Samtals 949 kg
14.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 767 kg
Samtals 767 kg
14.5.24 Júlía Rán RE 747 Handfæri
Þorskur 753 kg
Ufsi 140 kg
Samtals 893 kg

Skoða allar landanir »