Ásta Dís í stjórn Samherja

Ásta Dís Óladóttir tekur sæti í stjórn Smaherja.
Ásta Dís Óladóttir tekur sæti í stjórn Smaherja. Ljósmynd/Samherji

Ásta Dís Óladóttir hefur tekið sæti í stjórn Samherja hf. í stað Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur, sem setið hefur í stjórn félagsins um árabil og gegnt trúnaðarstörfum fyrir félagið. Ásta Dís hefur ekki áður setið í stjórn Samherja hf.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja.

Ásta Dís er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, með BA gráðu í félags- og atvinnulífsfræði, meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og doktorsgráðu í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School. Ásta Dís hefur á undanförnum árum komið að uppbyggingu náms í sjávarútvegi í Háskóla Íslands og kennt meðal annars námskeiðið Rekstur í sjávarútvegi. Þá er hún annar höfundur bókarinnar Fisheries and aquaculture, the food security of the future sem Elsevier gaf út 2021.

Þá segir að Ásta Dís hafi umfangsmikla stjórnunarreynslu og hefur setið í fjölmörgum stjórnum, nefndum og ráðum. Í dag er hún stjórnarformaður Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands og MBA náms, Rannsóknarmiðstöðvar Ferðamála og Félags háskólakvenna. Þá er hún formaður Jafnvægisvogarráðs og Vísindasjóðs Háskólans á Akureyri.“

Fjögurra áratuga samstarf

Í tilkynningunni þakkar stjórn og starfsfólk Samherja Helgu Steinunni fyrir ánægjulega samfylgd og farsælt samstarf, en hún hefur tekið þátt í uppbyggingu félagsins frá því að höfuðstöðvarnar voru fluttar til Akureyrar fyrir fjórum áratugum síðan.

Hún sat í stjórn Samherja frá árinu 2013 og var stjórnarformaður Samherjasjóðsins frá stofnun, Sjóðurinn hefur meðal annars stutt dyggilega við íþróttahreyfinguna á Íslandi.

Helga Steinunn Guðmundsdóttir.
Helga Steinunn Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Samherji
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.24 419,05 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.24 542,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.24 320,27 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.24 164,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.24 144,84 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.24 220,83 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.24 193,41 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »