Olíunotkun 40% minni á síðustu árum

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Á undanförnum árum hefur olíunotkun verið um 40% minni en hún var að jafnaði á fyrsta áratug þessarar aldar og nær helmingi minni en hún var á tíunda áratug síðustu aldar. 

Þetta kemur fram á vef Radarsins.

Sjávarútvegurinn hefur náð markvissum árangri í samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda undanfarin ár og er langstærsti hluti þess samdráttar vegna minni olíunotkunar í sjávarútvegi.

Draga úr olíunotkun og tryggja verðmætasköpun

Fram kemur að það geti reynst vandasamt að draga úr olíunotkun og um leið tryggja verðmætasköpun til framtíðar en að almennt stækki kolefnisspor atvinnugreina við aukin umsvif.

Sjávarútvegi hefur tekist vel í þeim efnum og hefur dregið verulega úr olíunotkun og minnkað kolefnissporið, án þess að það hafi bitnað á framleiðslu. Sá árangur sést á myndinni hér að neðan.

Graf/Radarinn

Orkunotkun í sjávarútvegi sveiflast frá einu ári til annars, meðal annars vegna breytinga í ráðlögðum afla einstaka fisktegunda og framleiðslu.

Á síðasta ári jókst olíunotkun í sjávarútvegi um 16 þúsundum tonn en þá aukningu má hins vegar að stærstum hluta rekja til skerðingar Landsvirkjunar á afhendingu á raforku til fiskimjölsverksmiðja. Sú skerðing kom á sama tíma og íslensk uppsjávarskip höfðu heimild til þess að veiða um 660 þúsund tonn af loðnu, sem er eitt mikilvægasta hráefni í vinnslu fiskimjölsverksmiðja á mjöli og lýsi.

Þrátt fyrir ofangreinda aukningu í olíunotkun í fyrra, sem að stærstum hluta var vegna skerðingar á raforku, er árangur sjávarútvegs í loftslagsmálum ótvíræður, segir á vefnum.

Raforkuvæðing skýrir árangur

Fram kemur að það séu margir samverkandi þættir sem skýra þann árangur og sé einn af þeim stærri raforkuvæðing fiskimjölsverksmiðja. Fjárfesting sjávarútvegsfyrirtækja í þeim efnum hefur gert það að verkum að hlutfall rafmagns í orkukaupum verksmiðjanna hefur farið sívaxandi og þar með hafa þær þurft að reiða sig í minna mæli á olíu, með tilheyrandi samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.

Í dag eru þær nær allar knúnar raforku. Aukinheldur hafa fyrirtækin ráðist í verulegar fjárfestingar í nýjum og stærri skipum, sem búa yfir nýrri tækni og eru sparneytnari en þau sem eldri eru. Eins hafa framfarir í veiðum og veiðafærum, betra skipulag veiða og fækkun skipa dregið úr olíunotkun.

Graf/Radarinn

Fiskveiðistjórnunarkerfið áhrifamikill þáttur

Það er á grundvelli fiskveiðistjórnunarkerfisins sem sjávarútvegur hefur náð þessum árangri í loftslagsmálum, enda felur kerfið í sér hagræna hvata til fjárfestinga, kemur fram.

Kerfið byggist á varanleika aflaheimilda sem stuðli að langtímahugsun hjá fyrirtækjum í greininni. Það er nauðsynlegt svo að hægt sé að auka fyrirsjáanleika í greininni en sjávarútvegur, ólíkt öðrum atvinnugreinum, er að mörgu háður duttlungum náttúrunnar þar sem sveiflur í stærð fiskistofna er einn stærsti óvissuþátturinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 438,80 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,47 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 189,44 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,40 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,17 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 5.782 kg
Ýsa 243 kg
Hlýri 45 kg
Steinbítur 39 kg
Keila 15 kg
Samtals 6.124 kg
13.5.24 Fálkatindur NS 99 Handfæri
Þorskur 602 kg
Samtals 602 kg
13.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 421 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 441 kg
13.5.24 Jökull ÞH 17 Handfæri
Þorskur 352 kg
Ufsi 37 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 390 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.5.24 438,80 kr/kg
Þorskur, slægður 13.5.24 523,97 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.5.24 302,47 kr/kg
Ýsa, slægð 13.5.24 267,41 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.5.24 189,44 kr/kg
Ufsi, slægður 13.5.24 173,40 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 13.5.24 216,17 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

13.5.24 Toni NS 20 Landbeitt lína
Þorskur 5.782 kg
Ýsa 243 kg
Hlýri 45 kg
Steinbítur 39 kg
Keila 15 kg
Samtals 6.124 kg
13.5.24 Fálkatindur NS 99 Handfæri
Þorskur 602 kg
Samtals 602 kg
13.5.24 Skírnir AK 12 Handfæri
Þorskur 421 kg
Ufsi 20 kg
Samtals 441 kg
13.5.24 Jökull ÞH 17 Handfæri
Þorskur 352 kg
Ufsi 37 kg
Ýsa 1 kg
Samtals 390 kg

Skoða allar landanir »