Mesta loðnuráðgjöf frá 2018

Norðmenn hafa hlutdeild í loðnu Íslendinga en nú stefnir í …
Norðmenn hafa hlutdeild í loðnu Íslendinga en nú stefnir í loðnubrest við Íslandsstrendur. Aðra sögu er að segja af loðnunni í Barentshafi. Ljósmynd/Eðvarð Þór Grétarsson

Á meðan Íslendingar horfa upp á mögulegan loðnubrest gefa norskir vísindamenn út mestu ráðgjöf um hámarksafla loðnuveiða í Barentshafi frá árinu 2018. Leggur norska hafrannsóknastofnunin (Havforskningsinstituttet) til að ekki verði veitt meira en 196 þúsund tonn af loðnu árið 2024.

Um er að ræða þreföldun á ráðgjöf fyrir vertíðina 2023 er hún var 62 þúsund tonn.

Fram kemur á vef norsku stofnunarinnar að mælst hafi mikið af loðnu í vistkerfismælingaleiðangri stofnunarinnar í Barentshafi og að norskir og rússneskir vísindamenn séu sammála um ráðgjöfina.

„Niðurstöður leiðangursins sýna að þriggja ára loðna, árgangur 2020, er stærsti hluti kynþroska loðnu sem stendur til að veiða. Á sama tíma er meira um fjögurra ára loðnu en mælst hefur frá árinu 1980, sem stuðlar einnig að stærð þess hluta stofnsins sem er kynþroska,“ segir Georg Skaret sjávarlíffræðingur í færslu á vef norsku hafrannsóknastofnunarinnar.

Georg Skaret sinnir loðnurannsóknum hjá norsku hafrannsóknastofnuninni.
Georg Skaret sinnir loðnurannsóknum hjá norsku hafrannsóknastofnuninni. Ljósmynd/Havforskningsinstituttet

Stefnir í ágætt verð

Á síðasta fiskveiðiári (2022/2023) lönduðu íslensku skipin 330 þúsund tonnum af loðnu, fiskveiðiárið 2021/2022 náðu þau 522 þúsund tonnum og fiskveiðiárið þar á undan 71,5 þúsund tonnum. Þar á undan var tveggja ára loðnubrestur, en það hafði ekki gerts frá því að loðnuveiðar Íslendinga hófust á sjöunda áratug síðustu aldar að loðnubrestur ætti sér stað tvö ár í röð.

Fari svo að íslensku uppsjávarútgerðirnar fá ekki að veiða loðnu í vetur gæti hæglega farið svo að norskar og rússneskar útgerðir sjá fram á mjög hagstæð verð fyrir loðnuafurðir sínar. Þó bendir fátt til að fást jafn há verð og Íslendingar eiga að venjast þar sem kaupendur loðnuhrogna í Asíu setja hrognin úr Barentshafi ekki í sama gæðaflokk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 331,22 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 278,70 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 131,99 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 624 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 100 kg
Ýsa 28 kg
Karfi 7 kg
Samtals 912 kg
10.5.24 Arnþór EA 37 Grásleppunet
Grásleppa 2.969 kg
Þorskur 138 kg
Samtals 3.107 kg
10.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 986 kg
Ýsa 971 kg
Keila 781 kg
Ufsi 685 kg
Langa 102 kg
Steinbítur 33 kg
Karfi 30 kg
Samtals 3.588 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 331,22 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 278,70 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 131,99 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

10.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 624 kg
Keila 153 kg
Steinbítur 100 kg
Ýsa 28 kg
Karfi 7 kg
Samtals 912 kg
10.5.24 Arnþór EA 37 Grásleppunet
Grásleppa 2.969 kg
Þorskur 138 kg
Samtals 3.107 kg
10.5.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 986 kg
Ýsa 971 kg
Keila 781 kg
Ufsi 685 kg
Langa 102 kg
Steinbítur 33 kg
Karfi 30 kg
Samtals 3.588 kg

Skoða allar landanir »

Loka