Óheppilegt ef loðnuveiðar hefjast seint

Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði (LVF), óheppilegt vera ef …
Garðar Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði (LVF), óheppilegt vera ef loðnuvertíð hefst of seint.

Uppsjávarútgerðpirnar bíða spenntar eftir því að loðnuveiðar fari aftur af stað en rannsóknir gefa ekki tilefni til mikillar bjartsýni.

„Þetta er skammlífur stofn og getur gengið í gegnum miklar breytingar á stuttum tíma. Bætir ekki úr skák að mælingarnar fara oft fram við mjög erfiðar aðstæður og ótal umhverfisþættir sem spila þar inn í,“ útskýrir Garðar Ágúst Svavarsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði (LVF), í viðtali í desemberblaði 200 mílna„Þá er óheppilegt ef veiðarnar fara seint af stað, gott væri að geta byrjað veiðar snemma þegar fitan er sem mest í fiskinum.“

Hoffell SU, uppsjávarskip Loðnuvinnslunnar.
Hoffell SU, uppsjávarskip Loðnuvinnslunnar. Ljósmynd/Loðnuvinnslan

Enn er ekki hægt að selja inn á Rússlandsmarkað en það olli framleiðendum uppsjávartegunda miklum búsifjum á sínum tíma, þegar sá markaður lokaðist í ágúst árið 2015. Innrás Rússlandshers í Úkraínu hefur ekki bætt ástandið. „Þessi tvö lönd hafa verið sterkir markaðir fyrir loðnuhænginn en á móti kemur að aðrir markaðir fyrir loðnu eru ágætlega á sig komnir og sala á loðnuhrygnu inn á Asíu gengur vel. Mjög góð hrognaframleiðsla um landið allt þýðir að útgerðir sitja á töluverðum birgðum og mun sala þeirra því taka lengri tíma en oft áður.“

Útflytjendur vita að ástand loðnustofnsins er sveiflukennt og hafa lært að haga rekstri sínum þannig að þeir ráði fjárhagslega við sveiflurnar. Garðar bendir þó á að það geti dregið dilk á eftir sér ef það gerist að engin loðna veiðist. „Það skiptir miklu máli að eiga vöru til að bjóða kaupendum og útgerðir finna það greinilega að ef þær geta ekki skaffað vöruna þá tapa þær mörkuðum og það getur tekið langan tíma að byggja viðskiptasamböndin upp að nýju.“

Viðtalið við Garðar má lesa í desemberblaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 331,22 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 266,99 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 131,99 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 10.5.24 331,22 kr/kg
Þorskur, slægður 10.5.24 592,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 10.5.24 266,99 kr/kg
Ýsa, slægð 10.5.24 177,67 kr/kg
Ufsi, óslægður 10.5.24 131,99 kr/kg
Ufsi, slægður 10.5.24 177,98 kr/kg
Djúpkarfi 8.5.24 313,00 kr/kg
Gullkarfi 10.5.24 203,55 kr/kg
Litli karfi 8.5.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 6.5.24 150,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

11.5.24 Vala HF 5 Grásleppunet
Grásleppa 2.803 kg
Þorskur 31 kg
Rauðmagi 12 kg
Samtals 2.846 kg
11.5.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 1.082 kg
Þorskur 648 kg
Steinbítur 352 kg
Keila 62 kg
Ufsi 5 kg
Skarkoli 3 kg
Samtals 2.152 kg
11.5.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 9.910 kg
Steinbítur 1.951 kg
Ýsa 1.266 kg
Hlýri 116 kg
Skarkoli 66 kg
Langa 40 kg
Ufsi 30 kg
Karfi 1 kg
Samtals 13.380 kg

Skoða allar landanir »