Ráðgjöf í grálseppu lækkar um 9% milli ára

Grásleppubátarnir fá að óbreyttu að veiða 4.030 tonn á vertíð …
Grásleppubátarnir fá að óbreyttu að veiða 4.030 tonn á vertíð ársins, sem er minna en heimilt var að veiða á síðasta ári en meira en náðist að veiða í fyrra. mbl.is/Hafþór

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2023/2024 verði ekki meiri en 4.030 tonn. Er það tæplega 9% minna en ráðgjöfin fyrir 2023, en rúmlega 42% minna en 2022 og 55% minna en 2021 þegar mesta ráðlagði hámarksafli var lagður til á undanförnum áratug.

Athygli vekur að þetta er meira en grásleppubátunum tókst að afla á síðasta ári þegar aðeins var landað 4.008 tonnum.

Í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar segir að ráðgjöfin byggð „að mestu á stofnvísitölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2024 en einnig frá árinu á undan. Vísitölur þessara tveggja ára voru svipaðar og vel undir langtíma meðaltali og því lægri en mörg ár þar á undan.“

Sveiflur í stofnvísitölu grásleppu milli ára er sögð koma til að hluta vegna óvissu í mælingunum. „Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla. Að teknu tilliti til þess leggur Hafrannsóknastofnun jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2024/2025 verði 1.216 tonn,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.5.24 408,85 kr/kg
Þorskur, slægður 2.5.24 377,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.5.24 196,03 kr/kg
Ýsa, slægð 2.5.24 106,84 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.5.24 123,98 kr/kg
Ufsi, slægður 2.5.24 151,54 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 2.5.24 136,62 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 6,94 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.5.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 6.292 kg
Ýsa 1.453 kg
Steinbítur 759 kg
Karfi 143 kg
Ufsi 17 kg
Keila 6 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 8.671 kg
2.5.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 11.808 kg
Skarkoli 1.948 kg
Ýsa 504 kg
Þorskur 201 kg
Samtals 14.461 kg
2.5.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 591 kg
Ufsi 50 kg
Samtals 641 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.5.24 408,85 kr/kg
Þorskur, slægður 2.5.24 377,55 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.5.24 196,03 kr/kg
Ýsa, slægð 2.5.24 106,84 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.5.24 123,98 kr/kg
Ufsi, slægður 2.5.24 151,54 kr/kg
Djúpkarfi 2.5.24 264,00 kr/kg
Gullkarfi 2.5.24 136,62 kr/kg
Litli karfi 2.5.24 6,94 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

2.5.24 Eskey ÓF 80 Línutrekt
Þorskur 6.292 kg
Ýsa 1.453 kg
Steinbítur 759 kg
Karfi 143 kg
Ufsi 17 kg
Keila 6 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 8.671 kg
2.5.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 11.808 kg
Skarkoli 1.948 kg
Ýsa 504 kg
Þorskur 201 kg
Samtals 14.461 kg
2.5.24 Bára HF 78 Handfæri
Þorskur 591 kg
Ufsi 50 kg
Samtals 641 kg

Skoða allar landanir »