Afmælishátíð kvartmíluklúbbsins

Sprett verður úr spori á kvatmílubrautinni á morgun, laugardag.
Sprett verður úr spori á kvatmílubrautinni á morgun, laugardag. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Afmælishátið Kvartmíluklúbbsins verður haldin á Kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni á morgun, laugardaginn 4. júní.

Mótið stendur yfir frá því klukkan 10 fyrir hádegi til 18. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Fyrir utan sýningu á tryllitækjum, bílum og mótorhjólum verður meðal annars keppt í kvartmílu, götuspyrnu, rallý, hringakstri og drifti.

Þá fer einnig fram svonefnd prjónkeppni á mótorhjólum, Team Spark sýnir kappakstursbíl sinn og loks verður haldin sýning í driftakstri.

mbl.is