Rafbíllinn Kia Niro EV kynntur á CES

Kia kynnti nýjan Kia Niro EV rafbíl á CES sýningunni í Las Vegas sem nú stendur yfir. Þetta er annar hreini rafbíllinn frá Kia en fyrir er Kia Soul EV.

Kia Niro EV er enn á þróunarstigi en hann verður með 383 km akstursdrægni. Bíllinn verður með 150 kW rafmótor sem skilar rétt rúmum 200 hestöflum.

Þetta er þriðja útfærslan af Kia Niro en hann er nú í boði bæði sem tvinnbíll og tengiltvinnbíll. Kia Niro EV er þó aðeins breyttur í útliti miðað við fyrirrennara sína og sérstaklega að innan þar sem hann er með nýstárlegt mælaborð og tæknivæddur.

Kia kynnti einnig á CES sýningunni ,,Boundless for all” verkefni sitt en sýn Kia á framtíðarbílinn er að hann verði meira en einungis bíll heldur muni hann spila stærra hlutverk hjá fólki í nánustu framtíð að sögn Dr. Woong-Chul Yang, aðstoðarforstjóra hjá Kia.

Kia stefnir að því að bjóða 16 rafknúna bíla árið 2025. Þeir munu verða hreinir rafbílar, Hybrid eða Plug-in Hybrid útfærslur. Þá hyggst Kia kynna fyrsta vetnisknúna bíl fyrirtækisins árið 2020.

mbl.is