Fyrsta hraðhleðsla ON á Vestfjörðum

Fyrsta hraðhleðslustöð ON á Vestfjörðum var tekin í notkun á Ísafirði í dag. Það var rafbílseigandinn og bæjarritarinn Þórdís Sif Sigurðardóttir sem fékk fyrstu hleðsluna úr hlöðu sem Orka náttúrunnar hefur reist á þjónustustöð N1 á Ísafirði.

Fagnaði Þórdís þessu skrefi sem ætlað er að styðja við bakið á aukinni rafbílavæðingu í landinu og þar með nýtingu á hreinni orkugjafa í samgöngum.

Hlaðan vestra er búin tveimur tengjum til að hraðhlaða rafbíla og þremur venjulegum hleðslutengjum. „Þannig getur hún þjónað nánast öllum gerðum rafbíla hér á landi. Á Vestfjarðakjálkanum hafa þó nokkur sveitarfélög sett upp hefðbundnar hleðslur fyrir rafbílaeigendur og með hraðhleðslunni eykst þjónustan við þá sem valið hafa þennan visthæfari ferðamáta. Þá hefur Orkubú Vestfjarða þegar sett  upp hraðhleðslur á Hólmavík og Patreksfirði,“ segir í tilkynningu.

Hleðslustöð ON á Ísafirði var tekin í notkun í dag.
Hleðslustöð ON á Ísafirði var tekin í notkun í dag.


Á vef ON og í appinu ON Hleðsla geta rafbílaeigendur séð staðsetningar allra hlaða ON og hvort þær eru lausar. Þar er líka finna staðsetningu hleðslubúnaðar annarra sem ON er kunnugt um.

Viðstödd þegar nýja hlaðan var opnuð voru auk Þórdísar Sifjar þau Gunnar Sigurðsson, stöðvarstjóri N1 á Ísafirði, Hafrún Þorvaldsdóttir, sölustjóri hjá ON og Guðjón Hugberg Björnsson, tæknistjóri hjá ON.

Hlaðan á Ísafirði er áttunda hlaðan sem ON og N1 hafa samstarf um að reisa og verða þær hluti fríðindakerfis viðskipta N1. „Fyrirtækið lítur svo á að rafbílaeigendum muni  bara halda áfram að fjölga í hópi okkar viðskiptavina og það að hlaða bílinn sinn er óðum að verða sjálfsagður þáttur í okkar þjónustu,“ segir Gunnar Sigurðsson, stöðvarstjóri.

Hafrún Þorvaldsdóttir nefndi við þetta tækifæri metnaðarfulla aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem kynnt var í byrjun vikunnar. „Það er augljóst að umhverfisvænni samgöngur munu skipa einna stærstan sess í baráttu okkar við loftslagsvandann og við hjá Orku náttúrunnar ætlum okkur að standa framarlega í baráttusveitinni hér eftir sem hingað til,“ sagði Hafrún.

Bæta aðgengi fatlaðra

Frá vinstri: Guðjón Hugberg Björnsson, Þórdís Sif Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson …
Frá vinstri: Guðjón Hugberg Björnsson, Þórdís Sif Sigurðardóttir, Gunnar Sigurðsson og Hafrún Þorvaldsdóttir. Ljósmyndir:/ON/Gústi


Frá því ON lauk við að opna hringveginn rafbílaeigendum, hafa hlöður bæst við á Húsavík og í Ólafsvík auk þess sem eldri búnaður hefur verið uppfærður á nokkrum stöðum. Fyrirtækið vinnur samhliða að því að bæta aðgengi fatlaðra að þeim hlöðum þar sem því er ábótavant. Auk þess á ON í samstarfi við systurfyrirtækið Veitur og Reykjavíkurborg um þróun hleðslulausna fyrir fólk sem hefur ekki aðgang að föstu bílastæði fyrir bílinn sinn og á því erfiðara með að hlaða heima fyrir.

Næstu hlöður ON munu rísa á Laugum í Reykjadal, þar sem verður hefðbundin hleðsla, hraðhleðsla og hefðbundin við Geysi í Haukadal, sami búnaður verður í nýrri hlöðu á Flúðum sem og við Vegamót á Snæfellsnesi.

Hlöður ON eru dreifðar um landið.
Hlöður ON eru dreifðar um landið.
mbl.is