Lærdómsríkur dagur með Porsche

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, útvarpskona á K100, átti einstaklega skemmtilegan vinnudag á kappakstursæfingadegi Porsche. Þar komst hún að því að þjálfun af þessu tagi er ekki bara mikið fjör heldur líka þess fallin að gera ökumenn hæfari og ábyrgari í daglegum akstri.

Fjallað er um ævintýrið í Bílablaði Morgunblaðsins sem kemur út á morgun, þriðjudag, og verður myndband frá viðburðinum birt á Mbl.is á næstu dögum.

mbl.is