Hyundai merki ársins að mati Red Dot

Hyundai Kona.
Hyundai Kona.

Hyundai Motor er farsælasta „vörumerki ársins 2018“ (Brand of the Year 2018) að mati yfirdómnefndar Red Dot Design Award sem tilkynnt hefur fyrirtækinu um aðalverðlaunin í ár sem afhent verða við hátíðlega athöfn í Berlín þann 26. október.

Þetta eru ein fjölmargra verðlauna sem Hyundai hafa hlotnast hjá Red Dod í gegnum tíðina fyrir skapandi, spennandi og frumlega hönnun. Þeirra á meðal eru hönnunarverðlaun Red Dot fyrir i-fólksbílalínuna þar sem allar gerðir hafa hlotið verðlaun Red Dot, IONIQ-þrenninguna, borgarsportjeppann Kona, sem nú er einnig að koma sem 100% rafbíll og loks nýja rafknúna vetnisbílinn Nexo sem væntanlegur er á markað.

„Aðalverðlaun Red Dot sem Hyundai hlotnast í ár eru ekki síst til komin vegna farsællar hönnunarstefnu fyrirtækisins, vel úthugsaðra og útfærðra tæknilausna, mikilla gæðakrafna í framleiðslu og loks framúrskarandi mannauðs á sviði vörustjórnunar fyrir merkið sem gert hefur fjölda samstarfssamninga við ólík fyrirtæki sem skara fram úr hvert á sínu sviði. Samstarfið gerir Hyundai kleift að bjóða viðskiptavinum sínum framúrskarandi gæðabíla sem búnir eru fyrsta flokks búnaði, hvort sem er á sviði öryggis eða afþreyingar,“ segir í tilkynningu.

Þess má geta að í ágúst sló Hyundai met hvað varðar móttöku verðlauna frá Red Dot þegar fyrirtækið fékk nokkur slík svo og „Red Dot: Best of the Best“ verðlaun vegna mismunandi verkefna og tæknilausna.

Kona EL á leið til BL

Nýlega kynnti Hyundai á Íslandi uppfærða útgáfu af sportjeppanum Tucson sem er einn vinsælasti bíllinn í sínum flokki í Evrópu og víðar. Á næstunni verður kynnt 100% rafknúin útgáfa af borgarsportjepplingnum KONA og fljótlega í kjölfarið NEXO, sem er önnur kynslóð Hyundai af 100% rafknúnum vetnisbíl.

mbl.is