Aston Martin prófar DBX jeppann

Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í …
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í byrjun vikunnar.

Aston Martin hefur  hafið umfangsmiklar aksturstilraunir með sinn fyrsta jeppa, sem fengið hefur heitið DBX. Til hans sást við þróunarakstur í rallbraut í Wales í byrjun vikunnar.

Meðfylgjandi myndir eru teknar við reynsluaksturinn í Wales en undir stýri sat yfirverkfræðingur jeppans, Matt Becker. Óhætt er að segja að útlínur bílsins séu í sterkri mótsögn við tveggja dyra hugmyndabílinn sem kynntur var 2016, en hann var t.d. með afturhallandi þaki.

Samkvæmt upplýsingum frá Aston Martin er þetta upphafið af þróunarakstri bílsins en honum verður haldið áfram og í því sambandi farið vítt um veröldina og leitað uppi margbreytilegar og krefjandi aðstæður.

DBX í endanlegri framleiðsluútgáfu verður ekki til fyrr en eftir um það bil ár.

Búist er við að uppfærð útgáfa af AMG M177 vélinni verði í DBX-lúxusjeppanum en sú vél er brúkuð í DB11 V8 og Vantage bílunum. Einnig að hann bjóðist aðallega á mörkuðum í Kína og Miðausturlöndum með V12 5,2 lítra vél með tvöfaldri forþjöppu úr eigin smiðju Aston Martin. Í öllum tilvikum verði um drif á öllum fjórum hjólum að ræða.  

Meðfylgjandi myndskeið er frá reynsluakstri Aston Martin DBX jeppans í Wales:

Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í …
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í byrjun vikunnar.
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í …
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í byrjun vikunnar.
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í …
Nýi Aston Martin DBX lúxusjeppinn við þróunarakstur í Wales í byrjun vikunnar.
Varla verða afturljósin svona þegar hinn nýi Aston Martin DBX …
Varla verða afturljósin svona þegar hinn nýi Aston Martin DBX birtist í endanlegri útgáfu.

mbl.is