Rafbíll á sölutoppinn

Nýjasta útgáfan af Nissan Leaf hefur orðið til að styrkja …
Nýjasta útgáfan af Nissan Leaf hefur orðið til að styrkja bílinn mjög í samkeppni við önnur bílamódel. AFP

Það fór eins og stefndi í haust; rafbíllinn Nissan Leaf varð söluhæsta bílamódelið í Noregi árið 2018. Er það og í fyrsta sinn sem rafbíll er söluhæstur þar í landi.

Alls voru nýskráð 12.303 eintök af Leaf sem er 263,6% aukning frá árinu áður. Trónir Leaf rækilega á toppnum því í öðru sæti í 9.859 eintökum varð Volkswagen Golf. Er það 18,9% samdráttur frá 2018.

Leaf kom á markað í Noregi seint á árinu 2011 en það ár seldust 373 eintök. Skömmu fyrir nýliðin sól kom fimmtíu þúsundasta eintakiði á götuna.

Rafbílar eru orðnir ráðandi í Noregi því í þriðja sæti varð BMW i3 sem seldist í 5.687 eintökum, sem er 12,9% aukning, og Tesla Model X í 4.981 eintökum, sem er 4,9% aukning.  Alls var hlutdeild rafbíla, tvinn- og tengiltvinnbíla í norska markaðinum 49,1% 2018.

Í fimmta sæti varð Mitsubishi Outlander með 4.323 eintök, Toyota Yaris í sjötta sæti með 3.856 eintök, Volvo XC60 í sjöunda með 3.687 bíla, í áttunda sæti varð Tesla Model S með 3.633 selda bíla, Toyota RAV4 í níunda með 3.627 og Renault Zoe vermir tíunda sætið með 3.141 bíla.

mbl.is