Ný Corolla frumsýnd

Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.

Það telst alltaf til tíðinda þegar ný kynslóð af Toyota Corollu er kynnt enda vinsælasti bíll í heimi. Engin einstök bílgerð hefur selst meira en Corolla en alls hafa meira en 46 milljón eintök selst frá því bíllinn kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1966.

„Íslendingar hafa tekið Corollu vel í gegnum árin og nú geta unnendur bílsins bæði gamlir og nýir glaðst því 12. kynslóð Corollu verður frumsýnd hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Selfossi og Akureyri næstkomandi laugardag, 23. mars,  frá klukkan 12 til 16.

„Auðvelt er að finna útfærslu sem hentar þörfum hvers og eins því þrjár mismunandi gerðir koma á markað samtímis. Þetta eru Sedan, Hatchback og Touring Sports.

Fram undan eru nýir og spennandi tímar fyrir Corollu því hún skartar kraftmikilli hönnun, hefur frábæra aksturseiginleika og ný 2.0 lítra Hybridvél á eftir að koma skemmtilega á óvart,“ segir í tilkynningu.

Nú fást allar gerðir Corolla í fyrsta sinn með tvinnvél (hybrid) en einnig eru hefðbundnar bensínvélar fáanlegar.

Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla er rúmgóð.
Hin nýja Toyota Corolla er rúmgóð.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Athafnasvæði ökumanns hins nýja Toyota Corolla.
Athafnasvæði ökumanns hins nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla.
Hin nýja Toyota Corolla sem langbakur.
Hin nýja Toyota Corolla sem langbakur.
mbl.is