Samdráttur hjá VW

Í höfuðstöðvum Volkswagen.
Í höfuðstöðvum Volkswagen. AFP

Volkswagensamsteypan sem heild seldi  2,8% færri bíla á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra.
 
Alls seldi samsteypan 2,6 milljónir bíla en samdráttur upp á 4,5% varð hjá kjarnamerkinu sjálfu, VW.

Í Kína varð samdráttur samsteypunnar 6,3% en þar í landi dróst heildarmarkaðurinn saman um 12% svo í raun bætti hún sig þar.

mbl.is